https://godaminning.is/wp-content/uploads/2026/04/dsc03276.jpg
800
1200
Inga
https://godaminning.is/wp-content/uploads/2026/03/God-aminning-outline-01.svg
Inga2026-04-17 14:28:012026-04-17 14:28:01„Gula spjaldið“ á opinberum vinnumarkaðiHöfnum afnámi áminningarskyldu
Ríkisstjórn Íslands ætlar að ráðast í eina stærstu réttindaskerðingu sögunnar á íslenskum vinnumarkaði — að afnema áminningarskyldu. Það myndi minnka starfsöryggi allra ríkisstarfsmanna. Þessa réttindaskerðingu setja stjórnvöld svo fram sem eins konar mannauðsstjórnunarmál til hagsmuna fyrir starfsfólk í stað þess að grípa til aðgerða til að bæta starfsumhverfið. Með því að afnema áminningarskyldu aukast verulega líkur á óréttlátum, ósanngjörnum og tilhæfulausum uppsögnum.
Gefum annan séns
Þegar stjórnendur veita áminningu er það okkar reynsla að sjaldnast er starfsmanninum einum um að kenna. Aðstæðurnar sem hafa leitt til þess að áminning er til skoðunar leiða oft í ljós að t.d. hafi ekki verið skýrt til hvers var ætlast af starfsmanni, skortur á upplýsingum um forgangsröðun, of mikið álag eða skortur á þjálfun. Svo eru auðvitað dæmi um að áminning sé réttmæt í ljósi hegðunar eða atviks. Í flestum tilvikum bætir starfsfólk ráð sitt. Ef ekki, er hægt að segja því upp.
Réttindi launafólks eru ekki tilviljun
Réttindi launafólks eru afrakstur langrar og oft á tíðum harðrar baráttu til að vinna gegn valdaójafnvægi milli starfsfólks og stjórnenda. Ef ekki væri fyrir kjarasamnings- og lögbundin réttindi, myndu atvinnurekendur ráða einir yfir lífsviðurværi og starfsaðstæðum launafólks. Þessi einhliða skerðing réttinda launafólks er fordæmalaus og vinnubrögð ríkisstjórnarinnar endurspegla skýrt að málið byggir á hagsmunum stjórnenda og atvinnurekenda en ekki launafólks. Við merkjum aukna hörku og minni þekkingu á réttum starfsfólks hjá hinu opinbera og hljótum að spyrja okkur: Hvaða réttindi hverfa næst?
Ógn við starfsöryggi ríkisstarfsfólks
Við spurðum ríkisstarfsfólk hvað þeim fyndist um áform yfirvalda. Það stóð ekki á svörum.
Kafaðu dýpra í það sem þau höfðu að segja:
Ógn við starfsöryggi ríkisstarfsfólks
Við spurðum ríkisstarfsfólk hvað þeim fyndist um áform yfirvalda. Það stóð ekki á svörum.
Kafaðu dýpra í það sem þau höfðu að segja:
Sendu áminningu á yfirvöld
Viltu áminna yfirvöld fyrir samráðsleysi og fyrirhugað afnám áminningarskyldu?
Hér til hliðar getur þú sent inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar. Þú getur einnig bætt athugasemdum við staðlaða textann eða breytt honum á þann máta sem þú vilt.
Við hvetjum þig til að bæta við persónulegum athugasemdum, til dæmis með því að segja frá því við hvað þú starfar, hvaða áhrif breytingin myndi hafa á þitt starf og hvaða skilaboð þú teljir að ríkisstjórnin sé að senda með þessum áformum.
Aðeins er hægt að senda umsögn úr hverju netfangi einu sinni.
Spurt og svarað
Hvað er áminning og hver er tilgangur hennar?
Áminning er til þess að tryggja ráðningarvernd starfsfólks og vandaða og faglega málsmeðferð í starfsmannamálum. Einnig að koma í veg fyrir að af uppsögn verði án þess að starfsmaður hafi fengið samtal um aðfinnslur og honum gefinn kostur á að tjá sig um þær. Stundum eru þær ósanngjarnar eða tilhæfulausar – stundum eru þær hárrétt viðbrögð. En áminningin tryggir að málið sé rætt við starfsmanninn sjálfan og hann fær tækifæri til að bæta úr áður en það getur komið til uppsagnar.
Stendur áminningarskylda í vegi fyrir að ekki sé hægt að segja upp fólki sem er ekki að standa sig?
Nei alls ekki. Stjórnendur hafa fullar heimildir til að bregðast við ef starfsmaður nær t.d. ekki nægilega góðum tökum á starfi sínu, gerir mistök í starfi eða sýnir ósæmilega hegðun. Áminningarskylda þýðir að starfsfólk þarf að fá áminningu áður en hægt er að segja því upp vegna atvika sem geta komið upp í störfum þeirra. Hafa verður í huga að í mörgum tilfellum er ástæðuna að rekja til stjórnunar eða starfsumhverfis – ekki bara starfsmanns sjálfs. Kannski voru óskýrar væntingar til hans í starfinu, álagið of mikið sem leiðir til mistaka eða stjórnandi ekki með réttar upplýsingar. Áminningin er leið til að tryggja að allar upplýsingar liggi fyrir og starfsmaður geti tjáð sig um þær. Ef hann bætir ekki úr í kjölfarið er svo hægt að segja honum upp. Ef brotið er mjög alvarlegt er hins vegar hægt að segja starfsfólki upp strax.
Er flókið að veita áminningu?
Nei, ferlið er ekki flókið.
Það er þó mikilvægt að fylgja einföldum reglum um hvernig verði að vinna málið.
- Áminning þarf að vera skrifleg
- Áminning þarf að vera byggð á málefnalegum forsendum
- Starfsfólk þarf að fá tækifæri til að tjá sig um atvikið áður en áminning er veitt.
Hvers vegna er áminningarskylda mikilvæg réttindi?
Áminningarskyldan felur í sér ráðningarvernd og er því réttindi fyrir allt starfsfólk ríkisins og sveitarfélaga. Að ekki sé hægt að segja upp starfsfólki af hvaða ástæðum sem er. Segja má að hún sé gula spjaldið áður en hægt er að draga upp rauða spjaldið. Þegar áminning hefur verið veitt hefur starfsfólk tækifæri til að bæta úr.
Er sanngjarnt að fólk fái að bæta ráð sitt áður en því er sagt upp?
Það er mannlegt að gera mistök. Allskonar getur komið upp í lífi fólks eða jafnvel aðstæður á vinnustað sem hafa áhrif. Í heilbrigðu starfsumhverfi má gera mistök og læra svo af því. Þess vegna er almennt talið afar sanngjarnt að starfsfólk fái slíkt tækifæri.
Það er bæði kostnaðarsamt og tímafrekt að segja upp starfsfólki, ráða inn nýtt fólk og þjálfa í starfi. Ef ekki er um svo alvarlegt brot að ræða sem réttlætir tafarlausa uppsögn er því oft bæði sanngjarnt og skynsamlegt fyrir vinnustaðinn að gefa starfsmanni tækifæri til að bæta úr áður en til uppsagnar kemur.
Er ómögulegt að segja upp starfsfólki sem fremur gróf brot, eins og kynferðisofbeldi?
Við höfum bent stjórnvöldum á að það hefur vantað ákvæði í lögin sem veitir stjórnendum ríkisins heimild til þess að segja upp starfsfólki sem hefur orðið uppvíst af grófum brotum eða hefur verið sakað um mjög alvarleg brot eins og kynferðisofbeldi. Ríkistjórnin segir eitt af markmiðum afnáms áminningarskyldu vera að ná utan um slík tilvik og geta þá brugðist við með uppsögn án áminningar Með því að bæta inn í lögin ákvæði um fyrirvaralausa uppsögn við tilteknar aðstæður, eins og er í gildi þegar kemur að starfsfólki sveitarfélaga, væri hægt að ná betur utan um slík tilvik. Afnám áminningarskyldu og þar með skerðing á ráðningarvernd allra ríkisstarfsmanna er ekki rétta né sanngjarnasta leiðin til að geta tekið á slíkum málum.
Er áminningarskylda einnig til staðar í öðrum löndum?
Já, áminningarskylda er til staðar víða.
Á Norðurlöndum gilda reglur um áminningar bæði á opinberum og almennum vinnumarkaði. Vernd starfsfólks er því meiri en á Íslandi. Sambærilegar reglur má einnig finna víða annars staðar í Evrópu.
Af hverju ætti áminningarskylda að vera áfram í lögum?
Áminningarskyldan hefur sannað gildi sitt í framkvæmd.
Áminning er mikilvægt verkfæri sem stjórnendur geta notað til að bregðast við málum sem koma upp á vinnustað.
Dómafordæmi sýna jafnframt að stjórnendur hins opinbera hafa fullar heimildir til að meta hvort tilefni sé til að veita áminningu.
Ef markmiðið er að jafna réttindi milli almenns og opinbers vinnumarkaðar væri eðlilegra að styrkja réttindi starfsfólks á almennum vinnumarkaði, frekar en að draga úr þeim sem þegar eru til staðar hjá opinberu starfsfólki.










