Aðalfundur FF mótmælir harðlega áformum stjórnvalda
„Kennarar eiga skilið stjórnvöld sem virða réttindi þeirra og leggja grunn að öflugu menntakerfi — ekki stjórnvöld sem setja í forgrunn hvernig megi auðvelda uppsagnir.“
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun 9. aðalfundar Félags framhaldsskólakennara. Aðalfundinum lauk nú síðdegis.
Inntak ályktunar FF er að mótmæla áformum stjórnvalda um að afnema áminningarskyldu á vinnumarkaði. Fundurinn skorar á stjórnvöld að falla frá þessum áformum og beina þess í stað kröftum sínum að „raunverulegum áskorunum í opinberum rekstri — manneklu, starfsmannaveltu og skorti á fjármagni til framhaldsskólanna“.
Fjármálaráðherra hefur þegar mælt fyrir frumvarpi um afnám áminningarskyldu. Aðalfundur FF bendir á að engin fagleg rök, greiningar né gögn hafi verið lögð fram sem réttlætt geti svo umfangsmikla skerðingu á réttindum opinberra starfsmanna.
Ályktun 9. aðalfundar FF – Selfossi 19. & 20. mars 2026
Níundi aðalfundur Félags framhaldsskólakennara, haldinn á Selfossi dagana 19. og 20. mars 2026 mótmælir áformum ríkisstjórnar um afnám áminningarskyldu harðlega.
Fundurinn mótmælir áformum ríkisstjórnarinnar um afnám áminningarskyldu úr lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Áminningarskyldan er grundvallarréttindi sem hefur tryggt starfsfólki ríkisins vandaða málsmeðferð og vernd gegn ólögmætum uppsögnum í áratugi. Engin fagleg rök, greiningar né gögn hafa verið lögð fram sem réttlæta svo umfangsmikla skerðingu á réttindum ríkisstarfsfólks.
Framhaldsskólakennarar bera mikla ábyrgð í starfi og takast daglega á við krefjandi aðstæður í umhverfi sem hefur búið við skort á fjármagni um langt skeið. Dómaframkvæmd sýnir að núverandi reglur veita stjórnendum fullt svigrúm til að taka á starfsmannamálum þegar þess gerist þörf. Vandamálið hafa ekki verið lögin heldur beiting þeirra. Rétta leiðin er betri fræðsla og stuðningur við stjórnendur — ekki skerðing á réttindum þeirra sem standa í framlínunni.
Aðalfundur FF skorar á ríkisstjórnina að:
-
- Falla frá áformum um afnám áminningarskyldu.
- Tryggja raunverulegt samráð við stéttarfélög um breytingar á starfsmannalögum.
- Beina kröftum sínum að raunverulegum áskorunum í opinberum rekstri — manneklu, starfsmannaveltu og skorti á fjármagni til framhaldsskólanna.
Kennarar eiga skilið stjórnvöld sem virða réttindi þeirra og leggja grunn að öflugu menntakerfi — ekki stjórnvöld sem setja í forgrunn hvernig megi auðvelda uppsagnir.


