Entries by Inga

„Gula spjaldið“ á opinberum vinnumarkaði

Að afnema áminningarskylduna er ekki tæknilegt smáatriði. Þetta er róttæk breyting á leikreglunum á vinnumarkaði. Það má líkja þessu við að taka gula spjaldið af fótboltadómaranum. Jú, það einfaldar hlutina fyrir dómarann – hann þarf ekki lengur að vara við áður en hann grípur til harðari aðgerða. En hvað gerist þá? Leikurinn verður harðari, ófyrirsjáanlegri […]

Áminningar í lögum um opinbera starfsmenn – hvað er í húfi fyrir aldraða?

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar. Áminningar í lögum um opinbera starfsmenn snúast ekki eingöngu um réttindi starfsfólks heldur einnig um þá þjónustu sem samfélagið byggir á. Fyrir aldraða sem reiða sig á heilbrigðisþjónustu, hjúkrunarheimili og félagsþjónustu getur það skipt sköpum að þar ríki stöðugleiki og reynsla. Þrátt fyrir það liggja nú fyrir drög í samráðsgátt stjórnvalda […]

Góð áminning um virðingu

„Við jafnaðarfólk leggjum áherslu á virðingu, að standa vörð um réttindi,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um helgina –  í sömu viku og ríkisstjórnin lagði fram frumvarp sem skerðir verulega réttindi starfsfólks ríkisins. Rökstuðningur ríkisstjórnarinnar fyrir afnámi áminningarskyldu hefur verið á reiki. Fyrst átti þetta að vera hagræðing. Svo jöfnun réttinda. Nú er þetta orðið „mannauðsmál.“ […]

Ályktun Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar

Ályktun Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar um fyrirhugaðar skerðingar á rétti til atvinnuleysistrygginga og afnám áminningarskyldu í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins Stjórn Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands lýsir yfir alvarlegum áhyggjum vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Fyrirliggjandi tillögur fela í sér skerðingar á réttindum launafólks […]

Ályktun formannaráðs BSRB um skerðingu réttinda

Formannaráð BSRB krefst þess að fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, dragi til baka frumvarp um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna og einbeiti sér að raunverulegum lausnum: að bæta starfsaðstæður og tryggja að ríkið laði að og haldi í starfsfólk.   Afnám áminningarskyldu væri ein stærsta réttindaskerðing á íslenskum vinnumarkaði í áratugi. Það skerðir starfsöryggi ríkisstarfsmanna verulega –  líklegt er […]

Góð á­minning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur sam­fé­laginu gangandi

Á Alþingi í vikunni var opinberum starfsmönnum lýst sem týpum sem eru samgróin Birkenstock inniskónum sínum. Væntanlega hefur viðkomandi séð fyrir sér stelpurnar sem starfa á spítalanum druslast sín 10.000 skref á vaktinni í inniskónum. Eða lögreglumanninn sem lufsast í inniskónum í handtöku á vopnuðum ofbeldismanni. Kannski framhaldsskólakennarann sem á að tryggja einstaklingsmiðaðan árangur 30 […]

Góð á­minning um sann­girni

Í sömu viku og fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi sem á að gera slökum stjórnendum auðveldara að reka ríkisstarfsmenn gaf héraðssaksóknari út 60 ákærur fyrir ofbeldisbrot eða hótanir gegn opinberum starfsmönnum. Mörg brotanna varða ofbeldi í garð lögreglumanna, fangavarða og heilbrigðisstarfsfólks sem hafa t.d. verið kýld, slegin, sparkað í þau eða hrækt á þau. […]