„Það er enginn dagur eins. Þetta er mjög lifandi og skemmtilegt starf. Það geta alveg komið upp krefjandi aðstæður og það skiptir máli hvernig maður bregst við þeim aðstæðum hverju sinni af því að þetta eru allt mismunandi persónur og leikendur. Það er örugglega mikill munur á kröfunum í kennarastarfinu í dag og áður fyrr. Tæknin er meiri. Hraðinn er meiri. Nálægðin er meiri. Það er búið að stytta framhaldsskólann í þrjú ár og kröfur á bæði nemendur og kennara hafa aukist. Það geta alveg komið tímabil — og við þekkjum öll tímabil þar sem við erum ekki endilega besta útgáfan af sjálfum okkur. Þegar þær aðstæður skapast er áminning tæki fyrir starfsmanninn til að bæta sig og þannig frekar til þess fallin að geta skapað traust á milli starfsmanns og stjórnenda. Miklu frekar en eiginleg refsing.“

Björn Ólafsson kennir sögu í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hann hefur alltaf haft áhuga á að átta sig á því sem gengur á í heiminum og skilja sögulegar rætur þeirra atburða sem móta samfélagið.

„Það hefur alltaf vakið áhuga minn, að reyna að skilja gangverkið. Af hverju hlutirnir eru eins og þeir eru. Að skyggnast inn fyrir tjaldið. Afleiðingarnar eru yfirleitt það sem vekur athygli; það sem við lærum um seinna og sjáum í fréttunum. En mér finnst baksagan eiginlega áhugaverðari. Að þræða atburðarásina, helst aftur til miðalda og útskýra fyrir nemendum að það er ekki tilviljun að hlutirnir fara eins og þeir fara. Ég var að fjalla um nasisma í Þýskalandi á fjórða áratugnum einhvern morguninn. Það var dimmt úti, en bjart inni í stofunni. Gluggatjöldin voru ekki dregin fyrir gluggana í skólastofunni. Þar sem ég stend við töfluna, með flennistóra mynd af hakakrossinum, sé ég hvar einhver stendur fyrir utan og starir á töfluna. Í kennslu erum við oft að fjalla um viðkvæm málefni. Maður verður að vera á tánum og viðbúinn öllum mögulegum mismunandi aðstæðum.“

Ef kennari veigrar sér við því að koma af stað umræðu um erfið eða viðkvæm mál vegna þess að hann gæti farið óttast um starfsöryggi sitt í kjölfarið þá erum við komin út á mjög hættulegar brautir.

„Kennarar eiga að miðla þekkingu. Kennarar eiga að efla gagnrýna hugsun. Kennarar eiga að koma af stað upplýstri umræðu. Ef kennari veigrar sér við því að koma af stað umræðu um erfið eða viðkvæm mál vegna þess að hann gæti farið óttast um starfsöryggi sitt í kjölfarið þá erum við komin út á mjög hættulegar brautir. Þá höfum við rýrt gæði menntunar á Íslandi. Þess vegna er það svo mikilvægt að hafa áminninguna sem öryggisventil fyrir kennarann þegar við er að fjalla um svona umdeild mál. Við erum öll mannleg.“