„Gula spjaldið“ á opinberum vinnumarkaði

Að afnema áminningarskylduna er ekki tæknilegt smáatriði. Þetta er róttæk breyting á leikreglunum á vinnumarkaði.

Það má líkja þessu við að taka gula spjaldið af fótboltadómaranum. Jú, það einfaldar hlutina fyrir dómarann – hann þarf ekki lengur að vara við áður en hann grípur til harðari aðgerða. En hvað gerist þá? Leikurinn verður harðari, ófyrirsjáanlegri og ósanngjarnari.

Sama gildir hér.

Áminningarskyldan er „gula spjaldið“ á opinberum vinnumarkaði. Hún tryggir að starfsfólk fái að vita ef eitthvað er að og raunhæft tækifæri til að bæta sig áður en gripið er til uppsagnar. Hún er einföld en mikilvæg vernd gegn geðþótta og tryggir að ákvarðanir séu málefnalegar.

Með því að afnema hana er verið að færa valdið nær alfarið yfir til stjórnenda. Það þýðir minna öryggi fyrir starfsfólk, meiri óvissu og aukna hættu á ósanngjörnum ákvörðunum. Það er ekki uppskrift að betra starfsumhverfi – heldur verra.

Með þessari breytingu værum við að stíga skref frá þeim löndum sem við berum okkur saman við. Á Norðurlöndunum – og víða í Evrópu – er sambærileg vernd hornsteinn réttláts og stöðugs vinnumarkaðar og gildir bæði á almennum sem opinberum.

Spurningin er því ekki hvort hægt sé að einfalda kerfið.

Spurningin er hvort við viljum vinnumarkað þar sem það er einfaldara að segja upp fólki – eða réttlátara að vinna þar.

Áminningar í lögum um opinbera starfsmenn – hvað er í húfi fyrir aldraða?

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar.

Áminningar í lögum um opinbera starfsmenn snúast ekki eingöngu um réttindi starfsfólks heldur einnig um þá þjónustu sem samfélagið byggir á. Fyrir aldraða sem reiða sig á heilbrigðisþjónustu, hjúkrunarheimili og félagsþjónustu getur það skipt sköpum að þar ríki stöðugleiki og reynsla. Þrátt fyrir það liggja nú fyrir drög í samráðsgátt stjórnvalda árið 2026 um að afnema þetta ferli í nafni einföldunar og samræmingar við almenna vinnumarkaðinn.

Áminningarferli í opinberri þjónustu snýst ekki bara um að vernda starfsmenn, heldur einnig um að tryggja gæði ákvarðana og stöðugleika í þjónustu sem samfélagið allt reiðir sig á. Þegar yfirmaður þarf að gera athugasemdir, skýra hvað er að og gefa færi á úrbótum áður en til uppsagnar kemur, er verið að draga úr hættu á mistökum og geðþótta. Slíkt ferli eykur líkur á að rétt ákvörðun sé tekin – bæði fyrir starfsmanninn og fyrir starfsemina.

Ef þessi skylda er afnumin verður auðveldara að taka skyndiákvarðanir um uppsagnir, án þess að mál séu nægilega ígrunduð. En slíkar ákvarðanir eru ekki endilega betri – sérstaklega þegar þær hafa áhrif á þjónustu sem við öll treystum á. Hættan er sú að rangar ákvarðanir verði teknar og starfsmannavelta aukist. Þá tapast þekking og reynsla úr kerfinu og stöðugleikinn veikist, sem hefur áhrif á gæði þjónustunnar.

Í umsögn BHM, BSRB, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasambands Íslands um frumvarpsdrögin er bent á að engin haldbær greining hafi verið lögð fram sem sýni fram á að nauðsynlegt sé að afnema áminningarskylduna til að bæta stjórnun eða mannauðsmál hjá ríkinu. Þar er einnig lögð áhersla á að vandinn hafi ekki verið reglurnar sjálfar heldur beiting þeirra, og að réttara væri að efla þekkingu stjórnenda og faglega mannauðsstjórnun en að skerða réttindi starfsfólks.

Þegar réttindi starfsmanna eru skert fylgir því oft aukið óöryggi og aukin starfsmannavelta. Það dregur úr stöðugleika og getur haft áhrif á gæði þjónustunnar.

Þetta hefur einnig bein áhrif á þá sem treysta mest á opinbera þjónustu, ekki síst aldraða. Í heilbrigðisþjónustu, á hjúkrunarheimilum og í félagsþjónustu skiptir stöðugleiki og reynsla starfsfólks miklu máli. Með aukinni starfsmannaveltu tapast þekking og samfella rofnar. Þetta bætist við þá manneklu sem þegar er til staðar og er ekki á bætandi, og getur haft áhrif á öryggi og líðan þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda.

Reglur af þessu tagi verða sjaldnast til af tilviljun – þær byggja á reynslu af því hvað gerist þegar svona öryggisreglur vantar. Að afnema slíkar reglur án þess að meta afleiðingarnar fyrir þjónustuna getur því verið skref aftur á bak.

Á Norðurlöndum er almennt ekki hægt að segja upp án þess að hafa fyrst gert athugasemdir og gefið fólki færi á að bæta sig. Þó reglurnar séu ekki eins orðaðar, þá byggja Norðurlöndin á því sama: að reyna fyrst að laga áður en sagt er upp. Samanburður við önnur Norðurlönd bendir því ekki til þess að slíkt ferli sé óþarfa flækja, heldur þvert á móti hluti af faglegri og áreiðanlegri opinberri þjónustu.

Spurningin sem við þurfum að spyrja er því ekki aðeins hvort hægt sé að einfalda kerfið, heldur hvað slík einföldun kostar. Opinber þjónusta þarf að vera bæði skilvirk og örugg. Það þarf ekki að fækka reglum – heldur passa að þær virki.

Áminningarferli er einn af þeim þáttum sem halda þjónustunni stöðugri og áreiðanlegri.

Höfundur er fyrrverandi formaður Sjúkraliðafélags Íslands.

Greinin birtist fyrst á DV 25. mars 2026.

Góð áminning um virðingu

„Við jafnaðarfólk leggjum áherslu á virðingu, að standa vörð um réttindi,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um helgina –  í sömu viku og ríkisstjórnin lagði fram frumvarp sem skerðir verulega réttindi starfsfólks ríkisins.

Rökstuðningur ríkisstjórnarinnar fyrir afnámi áminningarskyldu hefur verið á reiki. Fyrst átti þetta að vera hagræðing. Svo jöfnun réttinda. Nú er þetta orðið „mannauðsmál.“ Engin gögn, engin greining, engin fagleg rök – bara ný skýring í hvert sinn. Það rennir stoðum undir að engin fagleg eða málefnaleg rök búa þarna að baki heldur er verið að leita að þeim eftir á.

Þegar afnám áminningarskyldu átti að vera hagræðing bentum við á hið augljósa: hagræðingin er engin. Stjórnendur hafa þegar heimildir til að bregðast við ef starfsfólk stendur sig ekki.

Þegar þetta átti að vera jöfnun réttinda milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins bentum við á að: réttindi eru jöfnuð upp á við, ekki tekin af einum hópi.

Nú á þetta að vera mannauðsstjórnun. En mannauðsstjórnun snýst um að laða að fólk, efla það og halda í það, ekki að gera stjórnendum auðveldara með að reka það.

Forsætisráðherra hefur ítrekað sagt að þetta sé ríkisstjórn sem „framkvæmir.“ Það er ekki mælikvarði á árangur að gera bara eitthvað. Helstu áskoranir ríkisins eru mannekla, álag og starfsmannavelta – sérstaklega hjá framlínufólki. Lausnin er ekki að veikja starfsöryggi þeirra sem halda samfélaginu gangandi.

En það er einmitt það sem er verið að gera.

Það eru ekki umbætur. Það er niðurrif.

Samfélag sem vanmetur starfsfólkið sem vinnur í þágu þess grefur undan sjálfu sér. Ef vilji ríkisstjórnarinnar stendur til raunverulegra umbóta byrjar hún á því að styrkja réttindi, bæta starfsaðstæður og byggja upp traust. Það er forsenda þess að almannaþjónustan sem við treystum öll á virki. Það væri góð áminning um hvað virðing þýðir í raun.

Við hvetjum þig til að kynna þér hvað ríkisstarfsfólki finnst um þessi áform. Frekari upplýsingar og fleiri viðtöl má finna á godaminning.is

Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands og Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB.

Ályktun Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar

Ályktun Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar um fyrirhugaðar skerðingar á rétti til atvinnuleysistrygginga og afnám áminningarskyldu í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

Stjórn Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands lýsir yfir alvarlegum áhyggjum vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Fyrirliggjandi tillögur fela í sér skerðingar á réttindum launafólks almennt – réttindum sem hafa verið hornsteinn íslensks vinnumarkaðar í áratugi.

Á íslenskum vinnumarkaði hefur um langt skeið ríkt sú grundvallarregla að ákvarðanir sem snerta kjör og starfsöryggi launafólks eru teknar í nánu og markvissu samráði við heildarsamtök launafólks. Slíkt þríhliða samstarf stjórnvalda, launafólks og atvinnurekenda er ekki aðeins faglegt og eðlilegt – heldur er það lögbundið og lykilforsenda trausts og stöðugleika á vinnumarkaði. Þetta samstarf hefur lagt grunninn að velsæld og jöfnuði á Íslandi.

Tillögurnar sem nú liggja fyrir eru þess eðlis að þær krefjast víðtæks samstarfs og vandaðra greininga, enda varða þær grundvallarréttindi á vinnumarkaði. Það má alls ekki gerast á okkar vakt, Samfylkingarinnar, að samráð við heildarsamtök launafólks í svo mikilvægum málum sé hunsað og réttindi launafólks skert einhliða. Ríkisstjórnin er með því að stefna þessu samstarfi í óvissu sem mun grafa undan festu og fyrirsjáanleika á vinnumarkaði.

Eftirfarandi breytingar valda stjórn Verkalýðsmálaráðs Samfylkingairnnar sérstökum áhyggjum:

  • Stytta bótatímabil atvinnuleysistrygginga um 40% getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinga og stuðlað að verri fjárhagsstöðu þeirra og sveitarfélaga.
  • Breyta réttindamyndun í atvinnuleysistryggingum úr þremur í 12 mánuði sem getur útilokað fjölda þeirra sem vinna tímabundið, stunda sveigjanleg störf eða eru að fóta sig á vinnumarkaði.
  • Draga úr starfsöryggi opinberra starfsmanna með afnámi áminningarskyldu en henni er ætlað að stuðla að því að stjórnendur taki upplýsta og málefnalega ákvörðun um uppsögn. Áminningarskyldan er að sama skapi vörn gegn því að ákvörðun um uppsögn úr starfi sé ekki byggð á geðþótta eða misbeitingu valds.

Verði þessar breytingar að veruleika munu þær skerða starfsöryggi, tekjuöryggi, félagslegt öryggi og stöðu fólks sem stendur höllum fæti. Þær munu jafnframt grafa undan faglegum ástæðum uppsagna sem lúta að skyldum á opinberum vinnumarkaði.

Stjórn Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar hvetur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur eindregið til þess að málin verði tekin til markvissrar endurskoðunar, að fram fari raunverulegt samráð við aðila vinnumarkaðarins og að tryggt verði að allar breytingar á réttindum launafólks byggist á faglegum grunni, gagnsæi og ábyrgum vinnubrögðum. Það kallar m.a. á að mat fari fram á afleiðingum fyrirhugaðra lagabreytinga til lengri og skemmri tíma fyrir launafólk með hliðsjón af kyni, aldri, búsetu, fötlun, uppruna og öðrum þáttum sem máli skipta þegar kemur að mögulegri mismunun á vinnumarkaði. Þess má geta í þessu sambandi að meirihluti opinberra starfsmanna eru konur og meirihluti þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í upphafi árs 2026 er fólk af erlendum uppruna svo dæmi sé tekið.

Stjórn Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar

Ályktun formannaráðs BSRB um skerðingu réttinda

Formannaráð BSRB krefst þess að fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, dragi til baka frumvarp um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna og einbeiti sér að raunverulegum lausnum: að bæta starfsaðstæður og tryggja að ríkið laði að og haldi í starfsfólk.  

Afnám áminningarskyldu væri ein stærsta réttindaskerðing á íslenskum vinnumarkaði í áratugi. Það skerðir starfsöryggi ríkisstarfsmanna verulega –  líklegt er að sveitarfélögin  fylgi í kjölfarið. 

Áminningarskylda hindrar ekki uppsagnir. Hún tryggir að þær séu málefnalegar. Hún er lágmarksvernd gegn geðþótta, óréttlæti og misbeitingu valds – og sambærileg vernd er viðtekin á bæði almennum og opinberum vinnumarkaði í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við. Með þessu er verið að ráðast að réttindum starfsfólks sem ber uppi opinbera þjónustu við krefjandi og víða erfiðar aðstæður. 

Formannaráð BSRB mótmælir þessari aðför að launafólki harðlega.

Réttindi á að bæta – ekki skerða! 

Rauða borðið 23. mars 2026 // Birkenstock

Krefjast þess að frumvarp um afnám áminningarskyldu verði dregið til baka // Sprengisandur 22.3.2026

Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB og Helga Rósa Másdóttir, formaður Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga ræddu um fyrirhugað afnám áminningarskyldu í Sprengisandi á Bylgjunni í dag, 22. mars 2026.

Góð á­minning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur sam­fé­laginu gangandi

Á Alþingi í vikunni var opinberum starfsmönnum lýst sem týpum sem eru samgróin Birkenstock inniskónum sínum. Væntanlega hefur viðkomandi séð fyrir sér stelpurnar sem starfa á spítalanum druslast sín 10.000 skref á vaktinni í inniskónum. Eða lögreglumanninn sem lufsast í inniskónum í handtöku á vopnuðum ofbeldismanni. Kannski framhaldsskólakennarann sem á að tryggja einstaklingsmiðaðan árangur 30 nemenda – með 90 sekúndur á hvern.

Konur eru um 70% starfsfólks á opinbera vinnumarkaðnum en um 40% allra kvenna á Íslandi starfa hjá hinu opinbera. Nærri helmingur ríkisstarfsmanna starfar í heilbrigðis- og félagsþjónustu og um helmingur starfsmanna sveitarfélaga í menntakerfinu.

Starfsfólk á opinberum vinnumarkaði veitir þjónustu sem hefur bein áhrif á öryggi og heilsu almennings, jöfnuð, félagslega samheldni og velsæld. Störfin spanna allt frá nánum samskiptum við fólk í viðkvæmum aðstæðum — í heilbrigðisþjónustu, menntakerfi, löggæslu, fangelsum og félagsþjónustu — yfir í rekstur og viðhald mikilvægra samfélagsinnviða á borð við vegakerfi, almenningssamgöngur og orkumál.

Svo eru það verkefnin sem hafa bein áhrif á líf og afkomu fólks: almannatryggingar, sjúkratryggingar, atvinnuleysistryggingar, útgáfa vegabréfa og yfirferð skattskýrslna. Á bak við hvert þessara verkefna er starfsfólk sem ber ábyrgð á að þjónustan virki og að almenningur geti treyst henni.

Íslendingar hafa lengi talið almannaþjónustuna vera meðal mikilvægustu stoða samfélagsins. Þjónustan væri ekki til staðar nema fyrir starfsfólkið sem veitir hana. Þau starfa á hverjum degi í aðstæðum sem algengt er að einkennist af viðvarandi aðhaldskröfu eða niðurskurði, manneklu og skorti á fjárfestingu í húsnæði, búnaði og tækjum. Kannski var starfsmaðurinn sem vann við hættulegar aðstæður og smitaðist af berklum í vinnunni í Birkenstock?

Þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir þegir yfir lítillækkandi orðræðu gagnvart opinberu starfsfólki er hún ekki hlutlaus – hún er að samþykkja hana. Og þegar hún velur að bregðast við með því að veikja ráðningarvernd þessa hóps blasir forgangsröðunin við. Minna öryggi fyrir fólkið sem ber uppi samfélagið.

Áminningarskyldan er ekki forréttindi eða hindrun – hún er lágmarksvernd gegn geðþótta, óréttlæti og óvönduðum stjórnarháttum. Að afnema hana leysir ekkert af þeim raunverulegu vandamálum sem blasa við eins og skort á starfsfólki eða óviðunandi starfsaðstæður. Það sendir hins vegar skýr skilaboð um að fólkið sem heldur samfélaginu gangandi eigi að bera meiri ábyrgð en njóta minni verndar.

Spurningin er einföld: ætlar ríkisstjórnin að standa með ómissandi opinberum starfsmönnum eða liðinu á lakkskónum sem græðir á daginn og grillar á kvöldin?

Með því að smella hér má sjá opinberan starfsmann í hlaupaskónum segja frá því hvað henni finnst um aðför ríkisstjórnarinnar að réttindum sínum. 

Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands og Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB.

Greinin birtist fyrst á Vísi, 22. mars 2026.

Góð á­minning um sann­girni

Í sömu viku og fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi sem á að gera slökum stjórnendum auðveldara að reka ríkisstarfsmenn gaf héraðssaksóknari út 60 ákærur fyrir ofbeldisbrot eða hótanir gegn opinberum starfsmönnum. Mörg brotanna varða ofbeldi í garð lögreglumanna, fangavarða og heilbrigðisstarfsfólks sem hafa t.d. verið kýld, slegin, sparkað í þau eða hrækt á þau. Þarna er einnig að finna mál eins og sprengjuhótun á bráðamóttökunni og hótanir í garð fjölskyldu lögreglumanns.

Opinber þjónusta stendur og fellur með fólkinu sem sinnir henni. Álagið á starfsfólk hefur stóraukist, víða er undirmönnun viðvarandi og sífellt erfiðara er að halda úti þeirri grundvallarþjónustu sem samfélagið treystir á. Frá Landspítala berast reglulega neyðarköll þar sem starfsfólk lýsir ástandi líkt og í stríði, öll rými séu yfirfull og ekki takist að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks. Lögreglumenn og fangaverðir hafa ítrekað vakið athygli á auknu ofbeldi í starfi. Kennarar eru í dag ekki aðeins kennarar heldur líka ráðgjafar, tengiliðar og lausnaraðilar í flóknum aðstæðum en á sama tíma er ofbeldi og áreiti í starfi þeirra og utan vinnustaðar raunverulegt vandamál.

Þetta eru störf sem krefjast fagmennsku, ábyrgðar og mikillar seiglu. En starfsfólkið bendir á að þau séu ekki vélmenni. Þau eru manneskjur sem vinna við erfiðar aðstæður og geta gert mistök. Þegar mistök verða – eins og óhjákvæmilega gerist þar sem fólk vinnur undir álagi – þarf að bregðast við af sanngirni og fagmennsku. Leiðbeina, styðja og læra af reynslunni. Áminningarskyldan hefur gegnt því hlutverki að vera einn liður í því ferli. Hún er ekki hindrun, heldur öryggisventill sem tryggir að brugðist sé rétt við áður en gripið er til alvarlegri aðgerða.

Það er því erfitt að sjá hvernig afnám hennar á að styrkja opinbera þjónustu. Þvert á móti blasir við að slík breyting gæti grafið undan trausti, aukið óöryggi og gert opinber störf síður aðlaðandi – á sama tíma og við glímum nú þegar við skort á starfsfólki.

Stjórnvöld ættu að staldra við. Í stað þess að senda ríkisstarfsmönnum þau skilaboð að það þurfi að vera auðveldara að reka þau þarf að takast á við raunverulegar áskoranir: bæta starfsaðstæður, draga úr álagi og gera opinber störf eftirsóknarverð. Það er lykillinn að sterkri og traustri opinberri þjónustu og þar með betra og öruggara samfélagi.

Við gerum þá kröfu að frumvarpið verði dregið til baka. Jafnframt teljum við tímabært að horfa til þess hvernig megi styrkja ráðningarvernd launafólks á almennum vinnumarkaði og draga úr valdaójafnvægi milli launafólks og stjórnenda þannig að Ísland nálgist þau réttindi sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum.

Að lokum hvetjum við fólk til að kynna sér málið betur á góðáminning.is en þar má sjá viðbrögð ríkisstarfsmanna við aðför ríkisstjórnarinnar að réttindum þeirra.

Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands og Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB.

Aðalfundur FF mótmælir harðlega áformum stjórnvalda

Áminningarskyldan er grundvallarréttindi sem hefur tryggt starfsfólki ríkisins vandaða málsmeðferð og vernd gegn ólögmætum uppsögnum í áratugi. Afnám þessara réttinda kemur ekki til greina að mati aðalfundar FF.

„Kennarar eiga skilið stjórnvöld sem virða réttindi þeirra og leggja grunn að öflugu menntakerfi — ekki stjórnvöld sem setja í forgrunn hvernig megi auðvelda uppsagnir.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun 9. aðalfundar Félags framhaldsskólakennara. Aðalfundinum lauk nú síðdegis.

Inntak ályktunar FF er að mótmæla áformum stjórnvalda um að afnema áminningarskyldu á vinnumarkaði. Fundurinn skorar á stjórnvöld að falla frá þessum áformum og beina þess í stað kröftum sínum að „raunverulegum áskorunum í opinberum rekstri — manneklu, starfsmannaveltu og skorti á fjármagni til framhaldsskólanna“.

Fjármálaráðherra hefur þegar mælt fyrir frumvarpi um afnám áminningarskyldu. Aðalfundur FF bendir á að engin fagleg rök, greiningar né gögn hafi verið lögð fram sem réttlætt geti svo umfangsmikla skerðingu á réttindum opinberra starfsmanna.

Ályktun 9. aðalfundar FF – Selfossi 19. & 20. mars 2026

Níundi aðalfundur Félags framhaldsskólakennara, haldinn á Selfossi dagana 19. og 20. mars 2026 mótmælir áformum ríkisstjórnar um afnám áminningarskyldu harðlega.

Fundurinn mótmælir áformum ríkisstjórnarinnar um afnám áminningarskyldu úr lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Áminningarskyldan er grundvallarréttindi sem hefur tryggt starfsfólki ríkisins vandaða málsmeðferð og vernd gegn ólögmætum uppsögnum í áratugi. Engin fagleg rök, greiningar né gögn hafa verið lögð fram sem réttlæta svo umfangsmikla skerðingu á réttindum ríkisstarfsfólks.

Framhaldsskólakennarar bera mikla ábyrgð í starfi og takast daglega á við krefjandi aðstæður í umhverfi sem hefur búið við skort á fjármagni um langt skeið. Dómaframkvæmd sýnir að núverandi reglur veita stjórnendum fullt svigrúm til að taka á starfsmannamálum þegar þess gerist þörf. Vandamálið hafa ekki verið lögin heldur beiting þeirra. Rétta leiðin er betri fræðsla og stuðningur við stjórnendur — ekki skerðing á réttindum þeirra sem standa í framlínunni.

Aðalfundur FF skorar á ríkisstjórnina að:

    1. Falla frá áformum um afnám áminningarskyldu.
    2. Tryggja raunverulegt samráð við stéttarfélög um breytingar á starfsmannalögum.
    3. Beina kröftum sínum að raunverulegum áskorunum í opinberum rekstri — manneklu, starfsmannaveltu og skorti á fjármagni til framhaldsskólanna.

Kennarar eiga skilið stjórnvöld sem virða réttindi þeirra og leggja grunn að öflugu menntakerfi — ekki stjórnvöld sem setja í forgrunn hvernig megi auðvelda uppsagnir.