Guðmundur Fylkisson starfar sem lögreglumaður við leit að týndum börnum. Hann hefur starfað í þessu hlutverki í 11 ár og var valinn Maður ársins 2025 af Stöð 2 og SÝN.
„Þó ég teljist vera dagvinnumaður þá er vinnutími minn mjög breytilegur. Algengasti tími fyrir leitarbeiðni er á milli 22:00 og 02:00. En ég hef oft verið að vinna til 04:00 eða 05:00. Ég hef enga stjórn á fjölda verkefna. Ég get verið með enga leitarbeiðni í gangi. Ég get líka verið með sex leitarbeiðnir í gangi í einu, fyrir sex einstaklinga. En mér hefur ekki tekist að fá börnin til að strjúka eftir einhverju skipulagi. Þannig að þegar verið er að biðja mig um að gera eitthvað á morgun eða í næstu viku þá get ég í raun aldrei lofað mér í eitthvað slíkt. Ég veit ekkert hvernig staðan verður hjá mér eftir hádegi á morgun eða næsta miðvikudag.“
Jákvæðu hliðarnar miklu fleiri
„Þetta er gefandi starf og auðvitað getur þetta líka verið erfitt og slítandi en jákvæðu hliðarnar eru miklu fleiri. Sorglegu og erfiðu punktarnir eru fáir en þeir taka líka mjög á. Síðustu tvö ár hafa kannski verið erfið vegna þess að við höfum verið að jarða úr þessum hópi, að mig minnir fimm eða sex einstaklinga. Jákvæðu punktarnir eru svo þessi endalaust jákvæða endurgjöf frá börnunum, foreldrunum þeirra, ættingjum og samfélaginu öllu.“
“
Mér varð á. Ég gerði mistök og ég er með nýlega áminningu þó að geislabaugurinn minn sé vel pússaður undanfarið. Með áminningunni er mér gefinn kostur á að bæta ráð mitt.
„Okkur getur öllum orðið á. Mér varð á. Ég gerði mistök og ég er með nýlega áminningu þó að geislabaugurinn minn sé vel pússaður undanfarið. Með áminningunni er mér gefinn kostur á að bæta ráð mitt. Sem lögreglumaður þá heyri ég mjög oft, til dæmis ef ég stoppa einhvern fyrir of hraðan akstur: „Hefurðu ekki eitthvað þarfara að gera? Átti þú ekki að vera að eltast við alvöru glæpamenn eða eitthvað slíkt?“ Og það má kannski velta því fyrir sér af hverju þetta sé í forgangi hjá ríkinu að fara þessa leið? Sjálfum finnst mér margt annað mega bæta í mannauðsmálum . Við ættum kannski frekar að einbeita okkur að því að halda fólki í starfi en að byrja á þessum enda, sem að snýr að því að reyna að koma fólki úr starfi.“
Gefur til baka
Þegar Guðmundur er ekki að leita að týndum börnum, situr hann með fyrrverandi tengdamóður sinni og hnýtir skírnarslaufur.
„Það er svona hluti af því að njóta starfsins og skila til baka til krakkanna — að gera skírnarslaufur. Ég er búinn að gera þær nokkrar fyrir „strokubarnabörnin mín“ — ef það má nota slíkt orðalag. Þetta er hlutur sem að ég er að læra af fyrrum tengdamömmu minni af því það er enginn af hennar afkomendum sem eru að læra þetta. Fólk horfir á hendurnar á mér og dettur ekki í hug að ég sé einhver föndrari. Það er ákveðin áskorun með þessa putta að vera með nál og tvinna og búa til skírnarslaufur.“

