Hvaða réttindi hverfa næst?
Ríkisstjórn Íslands ætlar að ráðast í eina stærstu réttindaskerðingu sögunnar á íslenskum vinnumarkaði — að afnema áminningarskyldu. Það myndi minnka starfsöryggi allra ríkisstarfsmanna. Þá hafa sveitarfélög einnig kallað eftir sambærilegum breytingum, sem gætu haft víðtæk áhrif á starfsfólk um allt land. Á sama tíma glíma margir vinnustaðir hjá hinu opinbera við mikla manneklu, starfsmannaveltu, álag í störfum framlínufólks, neyðarástand í heilbrigðisþjónustu og aukin veikindi starfsfólks. Þessa réttindaskerðingu setja stjórnvöld svo fram í búningi einhvers mannauðsstjórnunarmáls til hagsmuna fyrir starfsfólk í stað þess að grípa til aðgerða til að bæta starfsumhverfið. Með því að taka áminningarskyldu burt aukast verulega líkur á óréttlátum, ósanngjörnum og tilhæfulausum uppsögnum.
Stjórnendur hafa nú þegar fulla heimild til að bregðast við ef starfsfólk er ekki að standa sig — það er því ekki vandamálið. Það er sanngjörn regla að fólki sé gefið tækifæri til að bæta úr áður en kemur til uppsagnar. Verði áminningarskyldan afnumin þá verður enginn slíkur varaventill lengur. Þá gætu stjórnendur sagt upp starfsmanni upp án þess að hafa gefið honum tækifæri til að bæta ráð sitt.
Okkar reynsla er að þegar stjórnendur eru að veita áminningu að sjaldnast er starfsmanninum einum um að kenna. Aðstæðurnar sem hafa leitt til þess að áminning er til skoðunar leiða oft í ljós að t.d. hafi ekki verið skýrt til hvers var ætlast af starfsmanni, skortur á upplýsingum um forgangsröðun, of mikið álag eða skortur á nýþjálfun. Svo eru auðvitað dæmi um að áminning sé réttmæt í ljósi hegðunar eða atviks. Í flestum tilvikum bætir starfsfólk ráð sitt. Ef ekki er hægt að segja því upp.
Fyrirhuguð skerðing er eingöngu rökstudd út frá hagsmunum stjórnenda og atvinnurekenda — en ekki starfsfólks ríkisins. Á hinum Norðurlöndunum og víðast í vestrænum löndum nýtur starfsfólk á almennum og opinberum vinnumarkaði einhvers konar ráðningarverndar. Ef áminningarskyldan yrði afnumin værum við að taka stórt skref aftur á bak í réttindum launafólks og værum með minnstu ráðningarverndina í alþjóðlegum samanburði.
BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands hafa tekið höndum saman til að berjast gegn þessari alvarlegu réttindaskerðingu. Saman stöndum við að herferð og krefjumst þess að ríkisstjórnin dragi frumvarpið til baka og einbeiti sér í staðinn að raunverulegum lausnum: að bæta starfsaðstæður og laða til sín og halda í hæft starfsfólk hjá ríkinu. Jafnframt teljum við tímabært að skoða hvort ekki eigi að styrkja ráðningarvernd launafólks almennt og draga úr valdaójafnvægi á vinnumarkaði, þannig að íslenskur vinnumarkaður færist nær því sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum.
Við hvetjum þig til að taka þátt: deila myndböndum úr herferðinni, ræða málið við samstarfsfólk, stjórnendur og alþingismenn og láta í ljós þína afstöðu.
Stöndum saman!


