Maríanna Magnúsdóttir starfar sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Í starfi sínu þarf Maríanna oft að taka ákvarðanir við erfiðar aðstæður.
„Já, það er mikið álag. Hér eru veikustu sjúklingar landsins. Mjög flókin og sérhæfð hjúkrun. Við vitum aldrei hvað við erum að ganga inn í eða hvað gerist á vaktinni. Það koma oft upp mjög krefjandi aðstæður. Þær geta verið tengdar fjölskyldum, skyndilegum veikindum eða að sjúklingurinn sé bara verulega óstöðugur og það er alveg sama hvað við erum að reyna, að maður nær ekki að halda í. Þó maður reyni að skilja vinnuna eftir í vinnunni, þá mun þetta náttúrulega alltaf taka toll. Hér þurfum við oft að taka mjög erfiðar ákvarðanir. Gjörgæslan er náttúrulega staðurinn á milli tveggja möguleika: Getum við lagað vandamálið og komið þér aftur á deild, þaðan sem þú ferð í endurhæfingu og áfram út í lífið. Eða náum við ekki að hjálpa.“
Stríðsástand á spítalanum
„Það á að skerða réttindin okkar, þrátt fyrir að það vanti hjúkrunarfræðinga alls staðar í heilbrigðiskerfið. Þrátt fyrir að Landspítalinn sé búinn að senda frá sér neyðarákall. Þetta er bara eins og stríðsástand. Mér fyndist réttara að athyglin beindist að því að gera starfið okkar meira heillandi. Meira öruggt. Af því að hér erum við ekki örugg. Starfsumhverfið er ekki eins og best er á kosið. Vinnuaðstæðurnar eru úr sér gengnar. Spítalinn er náttúrulega orðinn allt of gamall. Allt of lítill. Það fleiri og fleiri sjúkdómar fram á sjónarsviðið. Þjóðin eldist. Við blæðum hjúkrunarfræðingum. Að fara að taka áminningarskylduna fyrir sem eitthvað mannauðsverkefni hjá hinu opinbera, finnst mér mjög skrítin forgangsröðun. Ég myndi halda að við vildum frekar fá fleiri hjúkrunarfræðinga til starfa, heldur en að reka þá í burtu.“
“
Ég myndi halda að við vildum frekar fá fleiri hjúkrunarfræðinga til starfa, heldur en að reka þá í burtu.
Í faðmlögum við hundinn á gólfinu
Þrátt fyrir að vera í fullri vinnu, í krefjandi starfi og með fjölskyldu finnur Maríanna einnig tíma til að glæða líf fólks gleði með því að vera sjálfboðaliði í hundavinaverkefni Rauða krossins.
„Ég fer upp á Hólmsheiði með hundana mína og heimsæki fanga þar einu sinni í mánuði. Tilgangurinn er að reyna að rjúfa félagslega einangrun. Fólk telur niður í heimsóknirnar. Fólk, sem annars er einangrað og gefur sig ekki að örðum, er allt í einu komið í faðmlög við hundinn á gólfinu. Mér finnst mikilvægt að leyfa öðru fólki að njóta þess að vera í félagsskap hunds, sem ekki hefur kost á því annars staðar. Hundar eru svo framúrskarandi félagsskapur. Það er alltaf einhver glaður þegar þú kemur heim. Þó þú sért kannski í vondu skapi, eða úrvinda eftir erfiða vakt, er einhver hoppandi kátur sem tekur á móti þér. Þá er ekki hægt að finna fyrir einmanaleika.“

