Sif

Sjúkraliði á geðgjörgæslu

Sif Sigmundsdóttir starfar sem sjúkraliði á geðgjörgæslu 32C og segir það vera mjög andlega krefjandi.

„Dæmigerður vinnudagur hjá mér er að við mætum og byrjum á rapporti. Svo förum við inn á deildina og kynnum okkur fyrir sjúklingum og erum þeim innan handar, við það sem þeir þurfar. Við veitum þeim góða hlustun og nærveru. Það er enginn dagur eins. Suma daga er mikið álag og suma ekki. Það fer eftir sjúklingahópnum. Dagarnir eru margbreytilegir.“

„Vinnan mín getur verið mjög andlega krefjandi. Ég þarf að hugsa vel um mína andlegu heilsu og hvernig ég er stemmd í vinnunni. Í mínu starfi þarf ég oft að taka mikilvægar og mjög hraðar ákvarðanir. Okkur getur alltaf orðið á. Mér finnst að áminningaskyldan sé nauðsynleg. Að við höfum tækifæri til þess að vinna í okkar málum ef að okkur verður á. Að okkur sé ekki bara hent út. Það er nógu erfitt að fá sjúkraliða til starfa. Skilaboðin sem yfirvöld gefa eru að við skiptum engu máli. Það er bara þannig.“

“

Skilaboðin sem yfirvöld gefa eru að við skiptum engu máli. Það er bara þannig.

„Ég var bara 17 ára þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn. Nú á ég fjögur börn og níu barnabörn. Ég tek mikinn þátt í lífi barnabarnanna minna. Það er kannski kosturinn við að hafa verið ung móðir. Þá ertu ung og hress amma. Þegar ég er með krökkunum langar mig að upplifa eitthvað. Fara og hoppa. Fara í sund. Ég nenni ekki að sitja í bíó. Við erum ekki þar.“

Horfðu á allt viðtalið við Sif: